Rio Indicator Framþung flotlína (WF) Frábær lína í andstreymisveiðina þar sem sjaldnast er kastað langt. Indicator línan er með innbyggðum, skærlituðum tökuvara. Þyngdin dreifist á langan haus línunnar svo auðvelt er að leggja út þungar flugur og stóra tökuvara. Fínlegar lykkjur á báðum endum. Litur Gray/Green. Sama verð um allt land. Við sendum þessa vöru frítt með póstinum. Þú pantar í netverslun. Við skutlum pöntuninni þinni út á pósthús samdægurs eða næsta virka dag. Varan er í þínum höndum degi síðar. Einfalt og ódýrt, beint frá Veiðihorninu, veiðibúð allra landsmanna.
|