Sage X - Margverðlaunuð tímamóta flugustöng
Besta nýja flugustöngin - Eftex, Amsterdam - Júní 2016
Besta nýja flugustöngin í ferskvatn - IFTD, Orlando - Júlí 2016
Besta nýja flugustöngin í saltvatn - IFTD, Orlando - Júlí 2016
Besta nýja varan á stærstu fluguveiðisýningu veraldar - IFTD, Orlando - Júlí 2016
Þetta eru þau verðlaun og viðurkenningar sem hin nýja Sage X státar nú þegar af.
Aðeins einu sinni áður hefur það gerst að ný flugustöng tekur öll verðlaun sem í boði eru. Það var þegar Sage ONE kom á markaðinn.
Enn einu sinni hefur Jerry Siem hjá Sage að skapa ótrúlega stöng.
Sage X er unnin með Konnetic tækninni, þeirri sömu og notast er við í Sage ONE, Sage Mod, Sage Method og Sage Circa en Konnetic tæknin varðaði tímamót á sínum tíma.
Hér heldur þróunin áfram í tækni sem þróunardeild Sage kallar Konnetic HD (High Density)
Með nýrri tækni hefur tekist að framleiða stöng sem er með afar djúpa hleðslu, langt niður í handfang en mikinn hraða í bakslættinum sem auðveldar til muna að þrengja línubuginn. Sage X er því mjög hröð stöng, það er línuhraðinn er mikill en stöngin er að sama skapi með dýpri vinnslu en svo hraðar stangir.
Að okkar mati markar Sage X ný tímamót í gerð vandaðra flugustanga.
Hér er hlekkur á íslenskan bækling um Sage X
Hér er hlekkur á kynningar myndband um Sage X
Allar Sage X flugustangir eru handgerðar á Bainbridge eyju, utan við Seattle í Bandaríkjunum. Allar Sage X flugustangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda. Allar Sage X flugustangir eru í fjórum hlutum og koma í vönduðum álhólki með skrúfuðu loki.
Þú pantar Sage X í netverslun Veiðihornsins. Við sendum þér stöngina samdægurs eða næsta virka dag með póstinum og borgum flutninginn á pósthús næst þér.
|