Simms þjónustudagar

Einstök eftirþjónusta

Við höldum Simmsdaga í Veiðihorninu dagana 12.–15. maí. 

Á Simmsdögum bjóðum við viðskiptavinum  að koma með Simms vöðlur til okkar og fá þær yfirfarnar og lagfærðar auk þess sem við gefum góð ráð varðandi umhirðu og meðferð.

Simmsdagar hafa ævinlega verið vinsælir í Veiðihorninu. Þess má geta að síðast þegar við héldum Simmsdaga gerðum við við vel á annað hundrað vöðlur fyrir viðskiptavini Veiðihornsins.

Við bjóðum viðskiptavinum okkar að koma með vöðlur til yfirferðar og viðgerða og þiggja góð ráð frá sérfræðingum Veiðihornsins. Vöðlur verða að vera hreinar og merktar. – Aðeins einar vöðlur á mann.

Simms er eina Gore-tex merkið í vöðlum fyrir stangveiðimenn. Sú staðreynd og einstök eftirþjónustan skilur Simms frá öðrum merkjum.

Góða skemmtun á veiðislóð
Veiðihornið


Afgreiðslutími Veiðhornsins á Simms þjónustudögum:

Föstudagur: 9:00-18:00
Laugardagur: 10:00-16:00
Sunnudagur: 11:00-15:00
Mánudagur: 9:00-18:00

Hugsaðu vel um vöðlurnar þínar

– Myndband frá Simms þjónustudögum Veiðihornsins

Simms vöðlur