Black and Blue

650 kr.

1. desember 2023 er runninn upp.    Í dag má opna fyrsta boxið í jóladagatalinu þínu 24 laxaflugur til jóla. 
Heppnin er með þér því miklu færri  fengu jóladagatal en vildu. 
Nöfn þeirra sem pöntuðu jóladagatalið í forsölu lentu í lukkupotti.  Við drögum eitt nafn úr pottinum síðar í mánuðinum og færum þeim heppna / þeirri heppnu vandaða jólagjöf á aðfangadag jóla.
Góða skemmtun í desember.

Black and Blue

Black and Blue er frábær miðsumarsfluga en þessi vinsæla fluga er fáanleg hnýtt í fjölmörgum útfærslum.
Vinsælust er hún líklega hnýtt í „Longtail“ útfærslu á þríkrækju.

Hér er Black and Blue hnýtt léttklædd á einkrækju og í þessari útfærslu er hún frábær hvort heldur sem þú veiðir hefðbundið á hana eða bregðir á hana Portlandsbragði og myndar með henni gáru á vatnsflötinn.
Svo leyndarmáli sé ljóstrað upp er ekki ólíklegt að þú eigir eftir að finna fleiri veiðnar laxaflugur hnýttar í þessari útfærslu í dagatalinu þínu.  Sjáum til.

Ef þú vilt hnýta nokkur eintök fyrir næsta sumar þá er hér uppskrift sem styðjast má við:

Krókur – Ahrex HR414
Tvinni – Semperfli Classic Waxed Thread eða Semperfli Nano Silk í allra minnstu stærðirnar
Broddur – Ávalt, gulllitað UNI Tinsel
Stél – Nokkrar fanir úr hausfjöður af Gullfasana
Vöf – Ávalt gulllitað UNI Tinsel
Búkur – Flatt silfurlitað UNI Tinsel
Vængur – Nokkur hár úr svartlituðu íkornaskotti
Hringskegg – Blálituð hanahálsfjöður
Haus – Svartur

Clear

Shadow Flies