Handbók veiðimannsins – Silli kokkur

8.995 kr.

Handbók veiðimannsins.

60 blaðsíðna, uppskriftabók úr smiðju Silla kokks.

Í bókinni eru fjölmargar uppskriftir gómsætra villibráðarrétta auk meðlætis.  Uppskriftirnar eru settar fram á einfaldan hátt og með fallegum myndskreytingum.

Silli kokkur er matreiðslumeistari og landsfrægur veiðimaður.  Silli og fjölskylda reka veisluþjónustu og matarvagn.  Matarvagn fjölskyldunnar hefur tekið þátt í keppninni um götubita ársins og sigrað keppnina í öll þrjú skiptin sem hún hefur verið haldin. 
Matarvagn Silla kokks var sendur til Þýskalands í haust sem fulltrúi íslenskra götubita og skemmst er frá því að segja að Silli lenti í öðru sæti keppninnar bæði hjá dómendum svo og gestum auk þess sem gómsæti villibráðar borgarinn var valinn besti hamborgarinn í Evrópu.

Auk uppskrifta má finna ráðleggingar og upplýsingar um verkun villibráðar í þessari bók sem á heima í eldhúsum allra landsmanna.