Leonardo

650 kr.

Leonardo

Óhætt er að fullyrða að þessi fluga er ekki í hópi þekktustu flugna en vinsældir hennar hafa þó verið að aukast mikið síðustu árin því þetta er virkilega veiðin fluga.

Leonardo var fyrst kastað fyrir lax fyrir ríflega 30 árum.  Það var á bökkum Sogs, nánar tiltekið í Lækjarvík, neðan brúar í landi Alviðru og gaf hún strax veiði.  Leonardo var þá hnýtt á hefðbundna laxatvíkrækju í stærð #8.

Það var Óli í Veiðihorninu sem hannaði þessa flugu og birtist uppskrift hennar fyrst í bókinni Veiðiflugur Íslands sem kom fyrst út árið 1997 en var endurútgefin af Veiðihorninu árið 2006.

Nafnið fær flugan frá einni af Mutant Ninja Turtles fígúrunum sem voru vinsælar meðal barna þá.  Ungir synir Óla höfðu gefið honum barmmerki með mynd af uppáhaldinu í afmælisgjöf sem einmitt var þennan dag sem flugan var fyrst reynd.

Síðar litu dagsins ljós fleiri afbrigði þessarar flugu, hnýtt í litum hinna bardagaskjaldbakanna.  Lítið fór fyrir þeim þar til sumarið 2023 að Donatello sló eftirminnilega gegn og verður kannski sagt frá því síðar.

Í vatnsleysi síðustu ára hefur Leonardo notið vinsælda í þessari útfærslu.  Það er hnýtt ár örkrók eins og hér.

Uppskrift Leonardo eins og hún birtisti í bókinni Veiðiflugur Íslands árið 1997

Leonardo
Höfundur: Ólafur Vigfússon
Hnýtt af: Höfundi
Öngull: Stærðir 8-16, hefðbundnir eða stuttir
Tvinni: Svartur UNI 8/0
Búkur: Þræðir af perlu flashabou
Vængur: 4 – 6 þræðir af dökkbláu crystal hair, hár úr svartlituðu íkornaskotti
Haus: Svartur

Um fluguna: Góð miðsumars- síðsumars- og haustfluga.  Virðist gefa sérstaklega vel í ljósaskiptunum.

Clear

Shadow Flies