Munro Killer Longtail 3

650 kr.

Munro Killer

Hönnuður: Sjá skemmtilega frásögn hér neðar.

Margar flugur eru einskonar dægurflugur.  Koma fram á sjónarsviðið, rísa hátt en gleymast fljótt aftur.

Munro Killer er ein af þessum gömlu góðu.  Alltaf traust en sérstaklega þegar farið er að líða á sumarið og komið framá haust.

Munro Killer er algengust hnýtt á svarta þríkrækju og með stuttu stéli en er einnig fantalega góð í þessari útfærslu.  Það er hnýtt sem „longtail“ á lítinn gylltan krók.  Þegar líða fer á sumrin eru margar ár oft orðnar vatnslitlar.  Munro Killer í stærð 18 hnýtt með þessum hætti er þá oft grimmsterk hvort heldur sem hún er strippuð hratt yfir lygnan hyl eða á dauðareki.

Hér er uppskrift sem styðjast má við:

Munro Killer
Krókur – VMC 9617G.
Tvinni – Svart Semperfli Nano Silk.
Stél – Fínleg svarlituð, appelsínugullituð og gullituð hár af  hjartarhala og örfáir Krystalflash þræðir.   Í smæstu flugur er oft betra að nota enn fínlegri hár eða jafnvel fanir af hanafjöður.
Vöf – Ávalt UNI silfurtinsel eða vír í minnstu særðir.
Búkur – Svart UNI flos.
Skegg – Fanir af appelsínugullitaðri hanahálsfjöður og fanir af blálitaðri perluhænufjöður (Guinea Fowl).
Vængur – Hár af svartlituðu íkornaskotti.

(Skraut – Einnig er hægt að bæta við kinnum úr smæstu fjöðrum af frumskógarhana)

Fantagóð fluga sem þú verður að eiga í boxinu þínu.

Clear

Shadow Flies