Night Hawk

650 kr.

Night Hawk

Hönnuður: Stanford White

Að margra mati er Night Hawk einhver fallegasta fluga sem um getur.
Night
Hawk er ekki skosk fluga eins og margir halda.  Stanford White hannaði
þessa fallegu flugu fyrir hina mikilfenglegu Restigouche á í New
Brunswick í austanverðu Kanada.  Í þessa stóru en tæru á ganga á milli
15.000 og 25.000 atlantshafslaxar árlega og margir á milli 20 og 30
pund.

Hér er Night Hawk hnýtt léttklæadd á einkrækju.  Í þessari útfærslu má gjarnan bregða á hana Portlandsbragði og „hitsa“ með henni.

Hér er uppskrift sem styðjast má við:

Night Hawk
Krókur – Arex HR414 laxaeinkrækja
Tvinni – Svartur Semperfli Waxed Thread 8/0 eða Nano Silk
Broddur – Ávalt UNI silfur tinsel og gult UNI flos.
Stél – Hausfjöður af gullfasana.
Loðkragi – Rauð spunnin ull (eða gerviefni) – „dubbað“
Vöf – Ávalt UNI silfur tinesl.
Búkur – Flatt Uni silfur tinesl.
Skegg – Fanir af svartlitaðri hanafjöður.
Vængur – Hár af svartlituðu íkornaskotti.
Kinnar – Fjaðrir af frumskógarhana og bláar bakfjaðrir af Kingfisher (Bláþyrli).
Haus – Svartur.

NIght Hawk er stundum einnig hnýtt með rauðum haus og þá er notaður rauður tvinni.

Clear

Shadow Flies