Oros Strike Indicator Mix

1.795 kr.

Oros Strike Indicator Mix

Nýir byltingarkenndir tökuvarar gerðir úr fisléttu efni sem brotnar niður í náttúrunni.

Þrjár stærðir fáanlegar.  Þrír litir á spjaldi.

Oros tökuvararnir eru auðveldir í notkun og gera ekki brot á taum.

Til þess að festa Oros á tauminn er tökuvarinn einfaldlega skrúfaður í sundur, taumurinn lagður í gróp og síðan skrúfað saman aftur.

Auðvelt er að færa tökuvarann upp eða niður á taumi með því einfaldlega að losa um skrúfganginn, færa tökuvarann og herð aftur.

Varast skal að ofherða.

Á hverju spjaldi eru þrír litir: Bleikur, appelsínugulur og hvítur.

Hægt er að velja um þrjár stærðir:
Small (16mm í þvermál) – Passar með 5X taumum og grennri.
Medium (21mm í þvermál) – Passar með 3X til 5X taumum.
Large (26mm í þvermál) – Passar með 3X taumum og sverari.

Clear

Oros