Silver Sheep

650 kr.

Silver Sheep örfluga

Hönnuður: Haraldur Stefánsson.
Haraldur hannaði heila fjölskyldu Sheep flugna.  Þeirra þekktastar eru
Black Sheep og Silver Sheep en báðar má hiklaust telja með betri íslenskra
laxaflugna.

Silver Sheep er að margra mati sú fallegasta í Sheep fjölskyldunni.

Margir veiðimenn kjósa að nota Silver Sheep hnýtta á silfur krók í björtu
veðri en Black Sheep (svartur búkur í stað silfurs) hnýtta á svartan krók í
dimmu veðri og dumbungi en báðar þessar flugur eru sérstaklega fallegar og gjöfular.

Allar góðu veiðiflugurnar finnur þú á stóra flugubarnum í Veiðihorninu
Síðumúla 8. 

Fyrir veiðikonur og veiðimenn sem sem hnýta vilja sínar flugur er uppskrift
Silver Sheep hér:

Silver Sheep
Krókur – Ahrex HR490S (Esmond Trury Type þríkrækja)
Tvinni – Rauður UNI 8/0
Búkur – Ávalt UNI silfur Tinsel
Skegg – Blálituð hanafjöður
Vængur – 2/3 svart og 1/3 gult hár.  Oft notað hár af hjartardindli en í
minni stærðir er gott að nota mýkra hár t.d. íkornaskott eða jafnvel kanínu í
allra smæstu stærðir.
Kinnar – Jungle Cock / Frumskógarhani.
Haus – Rauður

Um Black Sheep segir þetta í bókinni Veiðiflugur Íslands eftir Jón Inga
Ágústsson:
„Black Sheep var fyrst hnýtt af Haraldi Stefánssyni árið 1977, en nafnið kemur
frá Joe Hubert sem veiddi gjarnan á klassískar laxaflugur.
Er hann horfði í boxin sín og sá þessa flugu þá talaði hann um „svarta sauðinn“ í hópi hinna flugnanna.
Black Sheep er líklega þekktust í Sheep-seríunni.  Hún reynist vel nánast
allt tímabilið í flestum ám.“

Veiðiflugur Íslands kom fyrst út árið 1997 og var endurútgefin af
Veiðihorninu árið 2006.

Í jóladagatalinu er Silver Sheep örfluga, hnýtt á VMC króku númer 14. 
Í þeirri útfærslu er þessi fluga hreint út sagt frábær í litlu vatni á sólríkum
sumardegi.  Sjá mynd hér neðar.

Góða skemmtun á bakkanum í sumar.

Clear

Shadow Flies