Leifur
650 kr.
Leifur
Hönnuður: Einar Páll Garðarsson
Enn ein töfraflugan eftir Palla. Kom líklega á markaðinn 2020 og hefur heldur betur bjargað veiðiferðum þegar ekkert virðist vera að virka.
Flugan Leifur er fallega græn á litinn og sker sig úr úrvalinu á flugubarnum.
Um fluguna segir Palli:
„Hún er fluga sem gefur við allar aðstæður, hvort sem er göngufiskur eða leginn fiskur.
Ég var fenginn til þess að hanna tvær flugur fyrir hjón sem hafa mikinn áhuga á veiði og var það sjálfsagt mál. Grænir sterkir litir í flugu hafa mér alltaf þótt heillandi og hef ég hnýtt nokkrar sem hafa gefið mér fiska en engin þó heillað mig það mikið að ég hafi haft áhuga á að sýna þær. Leifur er að mínu mati gríðarlega falleg fluga sem hefur gefið mér og öðrum þó nokkra laxa frá því að hún kom á sjónarsviðið.“
Óli í Veiðihorninu getur tekið undir þetta því oftar en ekki hefur Leifur bjargað málunum þegar ekkert annað hefur gengið upp.
Allar góðar veiðiflugur finnur þú á stóra flugubar Veiðihornsins í Síðumúla 8. Við sendum allar netpantanir samdægurs eða næsta virka dag og borgum flutninginn á pósthús næst þér á öllum pöntunum yfir 10.000 krónur.
Fyrir þau sem hnýta vilja Leif er uppskriftin hér frá hönnuðinum sjálfum:
Leifur
Krókur – Ahrex HR490G (gull) eða Ahrex HR490S (silfur)
Tvinni – Svartur UNI 8/0
Vöf – UNI ávalt silfur tinsel
Búkur – Grænt Krystalflash
Skegg – Grænlituð fjöður af Guinea Fowl
Undirvængur – Svartlituð hár úr íkornaskotti
Yfirvængur – Grænlituð fjöður af Guinea Fowl
Haus – Svartur