Persónuverndarstefna Veiðihornsins

Veiðihornið meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Veiðihornið safnar aldrei né vinnur persónuupplýsingar nema með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og gætir þess jafnframt að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga. Að því leyti sem þessum skilmálum sleppir gilda viðeigandi lög og reglur hverju sinni.

Í þeim tilfellum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar t.d. vegna fyrirspurna, pantana eða póstlista, þar sem viðskiptavinur þarf að skrá nafn sitt, heimilisfang, tölvupóstfang eða aðrar persónutengdar upplýsingar, skuldbindur Veiðihornið sig til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og mun ekki miðla áfram upplýsingum sem skráðar hafa verið til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Veiðihornið safnar ekki greiðslukortaupplýsingum viðskiptavina sinna. Þær greiðslur sem greiddar eru með kortagreiðslum í verslun eða á vefsíðu Veiðihornsins,  fara beint í gegnum örugga greiðslugátt.

Við heimsókn á vefsíðu okkar eru skráðar ýmsar nauðsynlegar upplýsingar um aðgengi og notkun. Þessar upplýsingar kunna að innihalda IP-tölur notanda. Þessum upplýsingum er einungis safnað af öryggisástæðum og fyrir bilanagreiningu. Þessi síða notar einnig vafrakökur fyrir nauðsynlega virkni, söfnun tölfræðiupplýsinga og fyrir deilingu á samfélagsmiðla.

Vinnsla gagna fer fram svo lengi sem notandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef notandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Veiðihornsins í tölvupósti á veidihornid(hjá)veidihornid.is