Spennandi fluguhjól frá Redington

Redington Ace er nýtt fluguhjól sem kynnt var til leiks í haust. Það er líklega besta fluguhjól sem komið hefur frá þessu virta bandaríska merki.

Einstaklega vel hönnuð spóla hámarkar pláss fyrir línu og baklínu en er að sama skapi sterk og létt.

Bremsubúnaður hjólsins er öflugur og tryggir hnökralaust og mjúkt átak þegar fiskar eru þreyttir. Hjólið hefur fengið góða dóma enda sérlega vandað og á góðu verði. Hjólið er úr fallegu renndu áli, létt og klárt í baráttu við spræka fiska.
 
Redington Ace er fáanlegt í þremur frísklegum litum: Night Rider, Silver Dollar og Brown Tobacco. Redington Ace hentar bæði silungs- og laxveiðimönnum og er fáanlegt fyrir bæði ein- og tvíhendur í línuþyngdum 5-10.
 
Við sendum allar netpantanir yfir 15.000 kr. frítt um land allt!

Redington ACE í netverslun