Sitka Hudson Bib Optifade Timber

121.895 kr.

Sitka Hudson Bib Optifade Timber  – Væntanlegt í vikunni

Hudson smekkbuxur með óviðjafnanlegri Gore-tex vatnsvörn.  Teygjanlegt efnið gerir þér kleift að hreyfa þig frjálslega án þess að vatns- og veðurvörn sé fórnað.   
Styrkingar á slitflötum gera það að verkum að buxunar endast þér árum saman.  Innri flísfóðrun heldur á þér hita á köldum dögum og það er nóg pláss til að bæta við einangrunarlögum þegar kólnar enn meira.

Þriggja laga Gore-tex efnið andar vel og gerir buxurnar 100% vatnsheldar.
Teygjuefnið auðveldar þér allar hreyfingar án þess að veðurvörn sé fórnað.
Innra flísefnið heldur á þér hita.
Styrkingar á slitflötum verja flíkina í erfiðustu aðstæðum.
Hnjáhlífar sem hægt er að fjarlægja.
Auðstillanleg axlabönd.
Vel hannaðir vasar til dæmis fyrir skotfæri.
Renndir vasar fyrir flautur
Renndar skálmar svo það er auðvelt að fara í og úr buxunum.
Flísfóðraðir vasar fyrir kalda fingur.
Aðeins 1.335 gr. (Stærð L).

Optifade Timber er hið fullkomna felumynstur í gæsa- og andaveiði.

Clear

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið