Allen Gear Fit Pursuit Punisher 52″
18.995 kr.
Allen Gear Fit Pursuit Punisher 52"
Vandaður og sterkur haglabyssupoki í MAX7 felumynstri. Pokinn er 52" eða 132 sentimetra langur og passar því öllum nútíma haglabyssum.
Ytri hólf með sterkum rennilásum fyrir þrengingar, hreinsivörur og annan aukabúnað. Pokinn er með sterku ytra byrði og mjúkur að innan og fer því afar vel með byssuna þína.
Sterkur rennilás, burðarhandfang og stillanleg axlaról prýða þennan vandaða byssupoka frá Allen.



