Autumn Brahan

650 kr.

Autumn Brahan

Allir laxveiðimenn þekkja hinar firnasterku Green Brahan og Black Brahan.

Færri þekkja til þessarar.  Autumn Brahan.  Hér eru haustlitirnir klárlega teknir yfir.  Autumn Brahan hefur verið gjöful fluga víða um land síðustu haustin.

Black Brahan er upprunalega ensk fluga, hönnuð af John Mackenzie.  Okkur er ekki kunnugt um hvort Autumn Brahan komi úr sömu smiðju.

Fyrir þá sem hnýta vilja þessa fallegur flugur er uppskrift hér sem styðjast má við:

Krókur – Ahrex HR490B
Þráður – Rauður Semperfli Waxed Thread 8/0
Stél – Nokkur gul- og appelsínugullituð hár úr hjartardindli í bland við Krystal Flash
Vöf – Koparlitaður vír
Búkur – Grænt holograph tinsel
Skegg – Appelsínugullitaðar fanir úr hanahálsfjöður
Vængur – Hár úr svartlituðu íkornaskotti
Haus – Rauður

Clear

Shadow Flies