Black Ghost með fjaðurvæng og JC kinnum

495 kr.

Black Ghost

Hönnuður: Herbert L. Welch

Besta fluga í heimi?  Margir telja að svo sé.   Svo mikið er víst að Black Ghost veiðir jafnt urriða, lax og bleikju.  Sá sem þetta skrifar hefur sett í og sporðtekið marga stórlaxa sem létu ginnast af Black Ghost (Óli).  Black Ghost var oft mikið notuð í haustveiði í Húnvetnsku ánum að hausti til og þá gjarnan kastað með sökkendalínum, löngu fyrir tíma þyngdra túba.

Black Ghost er hnýtt í fjölmörgum útgáfum.  Hér er uppskrift af þeirri sem við getum kallað „original“ eða því sem næst.  Það má leika sér með þessa uppskrift og stílfæra lit á væng, stéli og skeggi.  Við eigum fjölmargar útfærslur af þessari frábæru veiðiflugu á flugubarnum í Veiðihorninu Síðumúla 8 og hér í veiðibúð allra landsmanna á netinu.  Við sendum allar netpantanir samdægurs eða næsta virka dag.

Black Ghost
Krókur – Ahrex NS115 Deep Streamer.
Tvinni – Svartur UNI 6/0.
Stél – Gullitaðar fanir af hanafjöður.
Vöf – UNI ávalt silfurtinsel (upphaflega var notað flatt tinsel sem kemur einnig mjög vel út þegar hnýtt er á stærri króka.)
Búkur – Svart UNI flos (hægt að nota ýmislegt annað svo sem spunnið svartlitað selshár eða jafnvel spunnið (dub) gervihár íblandað með glithárum.)
Skegg – Sama efni og í stéli.
Vængur – Fjórar hvítlitaðar hanabakfjaðrir (hér þarf að velja jafnstórar fjaðrir af hvorri hlið og láta fjaðrirnar hvolfast saman.)
Kinnar – Frumskógarhani (Jungle Cock).  Oft er erfitt að fá Jungle Cock hnakka á skaplegu verði.  Því er vert að benda á fallegar prentaðar fjaðrir frá Semperfli.

Margir blanda appelsínugulu efni í væng, skegg og stél og nefnist flugan þá Black Ghost Sunburst.  Þá má geta þess að Olive Ghost eftir hinn kunna veiðimann og hnýtara Nils Folmer Jörgensen hefur reynst frábærlega vel til að mynda þegar kastað er fyrir urriðann stóra sem syndir í Þingvallavatni.

Hér að neðan sýnir Niklas Dahlin hjá Shadow Flies hvernig hann hnýtir Black Ghost.  Njótið vel.

Clear

Shadow Flies