Blue Pearl

650 kr.

Blue Pearl

Oftar en ekki þegar við í Veiðihorninu aðstoðum veiðimenn við að velja úr flugubarnum seinni part sumars þegar takan er farin að dofna í ánum bendum við fólki á að kíkja sérstaklega eftir flugum sem það þekkir ekki og hefur jafnvel ekki séð áður.

Það er kannski búið að kasta haugum af Frances, Collie Dog, Black and Blue, Green Brahan og öllum hinum þekktu flugunum fyrir lax og hann búinn að sjá þetta allt saman og oft.  Það er einmitt þá sem leynivopnin koma sterk inn.

Bláa perlan er hönnuð af Ásgrími Ara Jósefssyni og kom fyrst fyrir almenningssjónir sumarið 2022.  Bláa perlan er einmitt ein af leyniflugunum.  Litasamsetning flugunnar er einstök og hún sker sig frá öðrum flugum á flugubar Veiðihornsins.

Það getur verið gott að eiga nokkur eintök af Bláu perlunni næsta sumar þegar vatn fer að minnka og mikið búið að reyna allar flugurnar með þekktu nöfnin.  Bláa perlan.  Falleg fluga ekki satt?

Clear

Shadow Flies