Dýrbítur Magenta með gúmmílöppum

495 kr.

Dýrbítur Magenta með gúmmílöppum

Magentalitaður Dýrbítur er ýmist hnýttur með eða án gúmmílappa.

Upprunalega
hnýtti Siggi Páls þessa flugur svarta og án gúmmílappanna.  Siggi Páls var auðvitað
Sigurður Pálsson málari, sá mikli fluguhnýtari og veiðimaður.

Dýrbíturinn
varð til við Litluá í Kelduhverfi en þar ku vera svo stór urriðastofn
að veiðimönnum er bráð hætta búin og þurftu helst að hnýta fluguna á á
bak við bíl að sögn húmoristans Sigga Páls heitins.

Fyrir tæpum
tuttugu árum gekk dýrbítur laus í sveitinni og hafði tekið mörg lömb. 
Það kom svo í ljós síðar að það var sjóbirtingur í Litluá sem hafði
tekið lömbin og fékk flugan nafn sitt þess vegna.

Hér er Dýrbítur hnýttur í Magenta lit og með gúmmílöppum.  Í þessari útfærslu hefur Dýrbítur margsannað sig í sjóbleikju en það má segja að allir bestu sjóbleikju „strímerar“ séu á litaskalanum frá appelsínugulu og upp í fjólublátt.

Siggi Páls sagði
okkur í Veiðihorninu einhverntíman að Dýrbíturinn ætti ekki heima í
flokki straumflugna heldur í flokki mannskaðaflugna.

Förum varlega á veiðislóð.

Clear

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kort eða Aukakrónur Kort eða Aukakrónur
  • Netgíró Netgíró
  • Síminn Pay Léttkaup Síminn Pay Léttkaup
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Shadow Flies