Easy Shrimp Line Master Black / Blue
13.495 kr.
Easy Shrimp Eyes Line Master Black / Blue
Line Master frá Easy Shrimp Eyes er byltingarkennd strippkarfa, hönnuð til að létta þér lífið við fluguveiðar.
Körfuna notar þú til að halda flugulínunni í skefjum. Línan flækist ekki í gróðri á bakkanum og þú þarft ekki að rífa sökklínuna uppúr vatni áður en þú hleður í næsta kast.
Line Master strippkarfan er búin stangarhaldara sem er þægilegt þegar þú þarft að leggja stöngina frá þér og kröftugum segli svo flugan þín fjúki ekki út í veður og vind rétt á meðan þú kíkir í fluguboxið eftir nýrri.
Fjölmargar gerðir strippkarfa eru á markaðnum sem allar eiga það sameiginlegt að vera hin mestu þarfaþing. Það sem skilur Line Master strippkörfuna að frá öllum hinum er einkum það að hægt er að fella hana saman svo lítið fer fyrir henni þegar hún er ekki í notkun. Þá vegur Line Master strippkarfan frá Easy Shrimp Eyes aðeins rétt um 300 grömm.









