Garry Longtail

650 kr.

Garry Dog Longtail

Garry eða Garry Dog er mögnuð síðsumars- og haustfluga í lax. 

Hönnuður flugunnar var John Wright.  Sagan segir að Garry dog hafi orðið til á bökkum skosku árinnar Tweed og guli litur vængsins hafi verið hár úr hundi prestsins í sveitinni, Golden Retriever að nafni Garry.

Garry verður að vera til í boxinu þínu næsta haust.

Hér er uppskrift af Garry Dog Longtail sem má styðjast við:

Krókur – Ahrex HR490B
Tvinni – Svartur Classic Waxed Thread eða Nano Silk frá Semperfli
Stél – Rauðlituð hár úr hjartardindli og örfáir glitþræðir
Vöf – Ávalt UNI tinsel
Búkur – Svart UNI flos
Skegg – Fanir úr blálitaðri perluhænufjöður
Vængur – Rauðlituð hjartardindilshár og gullituð þar yfir

Clear

Shadow Flies