Hardy Cascapedia Ltd. Edition Racing Green

209.900 kr.

Hardy Cascapedia Ltd. Edition Racing Green

Hátíðarútgáfa – Aðeins 250 númeruð hjól framleidd.

Hardy Cascapedia 8/9 hjólið er ætlað "switch" stöngum og minni tvíhendum. 

Einstakt, klassískt fluguhjól hér í viðhafnarútgáfu.  Hér fer saman klassískt útlit Hardy í bland við nútímatækni því hjólið er búið nýjum bremsubúnaði með mjúku og þéttu bremsuátaki.  Hliðar hjólsins eru í fallegum "British Racing Green" lit með fægðum krómstál plötum með nafni hjólasmiðs og númeri hjólsins.

Tvöföld S-laga hjólsveifin jafnvægisstillir hjólið fullkomlega og er þægileg að vinna með þegar fiskur er þreyttur.  Stór og þægileg bremsuskífa er á hlið hjólsins.

Hardy Cascapedia Limited Edition er hannað og smíðað í Alnwick í Englandi og eru aðeins smíðuð 250 númeruð hjól. 

Okkur var úthlutað einungis fjórum hjólum og er því hér á ferð einstakt tækifæri að eignast fallegan og vandaðan safngrip með mikið notagildi.

Cascapedia 8/9 hentar vel "switch" stöngum og minni tvíhendum og tekur um 200 metra af 30 punda baklínu með línu #8. 

Hardy Cascapedia Limited Edition hjólið kemur í mjúku leðurhulstri.

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Hardy