Hrappur
650 kr.
Hrappur
Hrappur er einföld fluga en um Hrapp gildir eins og margar einfaldar flugur. Hún er afar veiðin allt sumarið.
Hrappur er ein af þessum nýlegu flugum á markaði og er strax orðin uppáhald margra fluguveiðimanna.
Einföld í hnýtingu. Hér kemur uppskriftin.
Krókur – Svört Ahrex þríkrækja í stærðum 10, 12 eða 14
Tvinni – Svartur Semperfli Classic Thread 8/0
Broddur – Gyllt flatt UNI tinsel
Búkur – Fön eða fanir af Peacock (eftir stærð króks)
Vængur – Svartlituð hár af íkortna, kanínu eða hesti
Haus – Flúrlitaður gulgrænn.
Veiðisögur sem við heyrðum í sumar af Hrappi voru flestar á þá lund að hann veiddi best þegar hann var strippaður hratt á yfirborði grunnra og hægra hylja.


