Jóladagatal 2026 – 24 laxaflugur – FORSALA
17.495 kr.
24 laxaflugur til jóla – 2026 – FORSALA
Í jóladagatalinu eru 24 flugur til jóla, ein fyrir hvern dag frá 1. til 24. desember.
Allar flugurnar í dagatalinu eru vandaðar og vel hnýttar flugur af fluguhnýturunum okkar hjá Shadow Flies.
Að þessu sinni eru flugurnar óvenju spennandi því þær eru afrakstur fluguhnýtingakeppni sem Veiðihornið stóð fyrir síðasta vetur. Hér eru því á ferð mörg spennandi leynivopn, ýmist nýjar flugur eða nýjar útfærslur af þekktari flugum.
Fjölmargir hnýtarar, þekktir og óþekktir tóku þátt í keppninni og eiga flugur í jóladagatölunum í ár.
Hverri
flugu fylgir QR kóði sem færir þér frekari upplýsingar um
fluguna, svo sem nafn höfundar, og skemmtileg frásögn eða jafnvel uppskrift.
Ein
afar sérstök fluga hefur verið hönnuð og hnýtt fyrir dagatölin en við
köllum hana jólafluguna. Flugan sú birtist í 24. hólfi dagatalsins. Ýmsar skemmtilegar jólaflugur hafa birst í jóladagatölum síðustu ára.
Það verður spennandi að sjá hver jólaflugan verður í ár.
Jóladagatölin 24 flugur til jóla eru nú komin í forsölu og verða til afhendingar í nóvember. Tryggðu þér jóladagatalið í forsölu strax í dag. Í fyrra seldust þau öll upp og fengu færri en vildu.
Sama verð um allt land því við borgum flutningskostnaðinn á næsta pósthús við þig.








