Kötturinn-Mickey Finn
650 kr.
Kötturinn MIckey Finn
Þegar þesi óhefðbundna fluga kom fram á sjónarsviðið sló hún strax í gegn.
Kötturinn veiðir jafnt urriða sem lax. Og sé flugan hnýtt í litum heimasætunnar eru hún einnig gríðarlega skæði í sjóbleikju.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig svartur Köttur er hnýttur. Ívar í flugusmiðjunni hnýtir.
Hér er Kötturinn hnýttur í Mickey Finn litunum. Svona hefur hann reynst sérlega vel í lituðu vatni.
Hönnuður Kattarins er Pjetur G. Hjaltason. Hann segir hér frá hvernig þessi skæða fluga varð til:
„Það var nokkrum dögum fyrir veiðitúr í Laxá í Laxárdal haustið 1996, að ég settist niður til að hnýta nokkrar flugur. Ég ætlaði að hnýta bjöllulíki sem ég hafði heyrt að gengi vel í Laxá á vandláta fiska. Bjöllulíkið var þannig hnýtt að bucktail var hnýtt niður, endarnir lausir snúa fram og síðan lagt aftur yfir og snyrt að framan. Ég brá þræðinum á og hnýtti niður hárvöndul, lagði hárin aftur yfir, hnýtti og sá þa að þetta var auðvitað alveg kolvitlaust, snéri allt í öfuga átt. En bíddu nú við, þetta var ekki svo vitlaus fluga, bætum við augum og setjum svolítið glitrandi inn á milli stélháranna… og flugan var fædd. Þegar hún lá þarna frágengin á borðinu hjá mér, kom sonur minn til mín leit á verkið og sagði, „Pabbi þetta er eins og lítill köttur.“ Þá var líka nafnið komið.“

Pheasant Tail með kúlu - 12
Nobbler Ólífugrænn - 6
Nobbler Gold - 6
Black Ghost með fjaðurvæng og JC kinnum - 6
Flæðarmús Appelsínugul - 8
Alda Svört / Skær Appelsínugul - 6
Nobbler Black - 6
Nobbler Hvítur með Appelsínugulu Strike - 6
Dentist - 6
Langskeggur - 10
Alma Rún - 10 

