Makkerinn

8.995 kr.

Makkerinn

Fróðlegt og fjörugt spurningaspil fyrir veiðifólk.  – Tilbúið til afgreiðslu strax eftir helgina.

Splunkunýtt og skemmtilegt spurningaspil um stangveiði á Íslandi eftir Mikael Marino Rivera.
Spilið inniheldur1450 spurningar sem skiptast í fimm flokka og koma víða við.
Leikinn er hægt að spila bæði í einstaklings- og liðakeppnum og leikmenn þurfa ekki að vera með ólæknandi veiðidellu til þess að sigra (Það hjálpar þó) .

MIkael Marinó Rivera hannaði þetta skemmtilega spil sem er loksins að detta í hús.

Í spilinu eru 1450 spurningar sem skiptast í fimm flokka:
„Í Fyrsta kasti“ eru almennar spurningar
„Fluguboxið“ er myndagáta með flugum
„Makkerinn segir“ eru fullyrðingar makkersins sem ýmist eru réttar eða rangar
„20 pundarinn“ flokkur með virkilega erfiðum spurningum
„Þríkrækjan“ vísbendingaspurningar

Tryggðu þér Makkerinn strax í dag því takmarkað magn verður í boði.  Spilaðu um jólin og veiddu í sumar.

Bættu við nokkrum flugum og fáðu Makkerinn sendann frítt á næsta pósthús við þig.

Hér að neðan er tengill á frétt Morgunblaðsins um nýja spilið sem allir veiðimenn verða að eiga.