Nobbler Hvítur
495 kr.
Nobbler Hvítur
Nobblerar eru til í fjölmörgum útfærslum og litum. Áður fyrr voru
þessar flugur hnýttar á mjög legglanga straumfluguöngla en síðustu árin
er Nobbler vinsælli hnýttur á styttri krók og gjarnan vafinn með Grizzly
fjöðrum (bekkjóttum). Þessi útfærsla Nobbler er oft kennd við
stórveiðimanninn og fluguhnýtarann Stefán Hjaltested.
Nobbler
er hnýttur í mörgum litum en einhvernvegin er sá svarti alltaf
vinsælastur. Svartur Nobbler er sérlega góður í urriða og sjóbirting á
meðan hvítir, appelsínugulir og jafnvel bleikir veiða betur staðbundna
og sjógengna bleikju.
Allar góðar veiðiflugur færðu á stóra flugubarnum í Veiðihorninu, Síðumúla 8.
Fyrir veiðikonur og veiðimenn sem hnýta veiðiflugur sínar sjálf fylgir uppskriftin hér.
Hvítur Nobbler
Krókur – Ahrex SA220 straumfluguöngull
Tvinni – UNI 6/0 hvítur
Stél – Fáeinar fanir af hvítlituðum Marabou ásamt nokkrum Krystalflash þráðum
Loðkragi – Fluorocent gullitað Chenille
Vöf – Ávalt UNI silfur Tinsel
Búkur – Hvítt Chenille
Búkfjöður – Bekkjótt hanafjöður
Augu – Vaskakeðja eða þverhaus (þyngri en vaskakeðja)
Haus – Hvítur