Uppselt
Ósmann Silver Treble
650 kr.
Ósmann Silver Treble
Ósmann er ein af þessum straumflugum sem veiða vel jafnt sjóbleikju sem sjóbirting. Það má segja að flugan sigli svolítið undir radar því þeir eru ekki margir sem þekkja og nota þessa frábæru flugu.
Hér er Ósmann hnýttur í nýstárlegri mynd því hann er hér klæddur á silfurþríkrækju og hefur reynst mjög vel á björtum dögum í laxveiði. Það er oft þannig þegar hann er tregur að gott er að sýna eitthvað nýtt.
Þessi bjarta og fallega fluga ætti því að vera í boxinu þínu í sumar.


