Redington Wrangler fluguveiðipakki

34.997 kr.

Redington Wrangler fluguveiðipakki

Nýr fluguveiðipakki 2023.

Redington Wrangler stöngin er miðhröð kröftug stöng í fjórum hlutum.  Stöngin er fáanleg fyrir ýmsar línuþyngdir.

Fyrst um sinn bjóðum við þennan pakka í  tveimur útfærslum.  Annars vegar Trout XL sem er með línuþyngd #6 og er hugsuð fyrir stærri silung.  Stöngin ber auðveldlega sökkenda, þungar púpur og stórar straumflugur.  Hins vegar er Redingtoon Wrangler pakkinn fáanlegur sem Salt fyrir línuþyngd #8.  Línurnar sem fylgja Redington Wrangler pökkunum eru Rio Mainstream sem kemur með Trout XL (#6) pakkanum og hin vinsæla Rio Single Handed Spey sem kemur með stærri stönginni (#8).
Báðar stangirnar eru 9 fet.

Stöngin kemur með hinu nýja Redington Crosswater hjóli sem er með uppfærðan og mun betri bremsubúnað en eldri hjól.  Flotlínurnar Rio Mainstream #6 og Rio Single Handed Spey #8 eru áspólaðar og tilbúnar í veiði með frammjókkandi Rio Powerflex taumi í viðeigandi styrk.

Sterkur hólkur fylgir settinu.

Bandarísku Redington fluguveiðipakkarnir hafa verið einhverjir mest keyptu fluguveiðipakkar á Íslandi mörg undanfarin ár enda vandaðar vörur á viðráðanlegu verði.

Redington Wrangler hentar jafnt byrjendum sem vönum veiðimönnum.

Clear

Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.

Redington