Rio Blær

Original price was: 17.995 kr..Current price is: 14.396 kr..

Rio Blær  – FORSALA
Rio Blær er á leið til landsins og tilbúinn til afgreiðslu í lok mánaðarins.  Tryggðu þér þessa frábæru línu með 20% afslætti í forsölu í netverslun.

Rio Blær er framleidd hjá Rio í Idaho í Bandaríkjunum fyrir Veiðihornið.

Rio Blær er hin fullkomna einhendu flotlína hvort sem þú veiðir með þyngri flugum niður við botn eða smáum flugum á yfirborðinu.

Uppbygging línunnar með þyngdarpunktinn framarlega í vel hönnuðum hausnum gerir Rio Blæ einstaklega auðvelda í allri notkun.  Afar auðvelt er að stjórna lengd kasta, nákvæmni línunnar í lofti og hraða hennar í straumvatni.
Hvort sem þú þarft að velta yfir þungum flugum með tökuvara eða leggja smæstu þurrflugur ljúflega langt út á vatn er Rio Blær línan fyri rþig.
Lengdarköst, nákvæmni og fínleg framsetning flugu á vatn er leikur einn með Rio Blæ.
Rio Blær er heldur þyngri en staðlaðar línur og hentar því vel byrjendum sem vönustu kösturum.

Meiri kraftur.  Meiri fjölhæfni.

Línan er byggð á hefðbundnum kjarna með u.þ.b. 7% teygju.  Kápan er SlickCast meðhöndluð en SlcikCast er sleipasta og endingarbesta línukápan á markaðnum.  Hún er með minnstu núningsmótstöðu sem mælst hefur á flugulínum.
MaxFloat meðhöndlunin gerir það að verkum að Rio Blær flýtur hátt á yfirborði.

Rio Blær er marglit lína með auðsjáanlegum hleðslukafla og taumalykkjum á báðum endum.

Rio Blær er framleidd fyrir Veiðihornið og íslenska veiðimenn. 

Blær er einhendulína og fáanleg í línuþyngdum #5, #6, #7 og #8

Clear

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Rio