Rio Stormur
Original price was: 21.995 kr..17.596 kr.Current price is: 17.596 kr..
Rio Stormur – FORSALA
Rio Stormur er á leið til landsins og tilbúinn til afgreiðslu í lok mánaðarins. Tryggðu þér þessa frábæru línu með 20% afslætti í forsölu í netverslun.
Rio Stormur er tvíhendulína, framleidd hjá Rio í Idaho í Bandaríkjunum fyrir Veiðihornið.
Rio Stormur er skotlína með stuttum haus og samfastri, mislitri rennilínu.
Stormur er hannaður til að hlaða stangir hratt og auðvelda tvíhenduköst. Stormur er byggður á teygjulausum kjarna með sleipri kápu sem rennur hratt og endist lengi.
Þyngdarpunkturinn liggur aftarlega í vel hönnuðum hausnum og auðveldar því hleðslu.
Frammjókkunin er nógu löng til að mynda þröngan bug í köstum og leggja línuna ljúflega á vatn.
Rio Stormur ber auðveldlega Rio Versi-Tip endana sem fáanlegir eru í tveimur lengdum og nokkrum þyngdum.
Rio Stormur er í flokki Elite lína Rio. Elite línurnar eru byggðar á nýjasta teygjulausa kjarnann sem bætir virkni og ýkur mýkt og endingu.
SlickCast kápan er sleipasta og endingarbesta kápan á markaðnum. Hún er með minnstu núningsmótstöðu sem mælst hefur á flugulínum.
Rio Stormur er marglit lína með auðsjáanlegum hleðslukafla og taumalykkjum á báðum endum.
Stormur er fljótandi skotlína fyrir tvíhendur, auðveld í köstum, framleidd af Rio fyrir Veiðihornið og íslenska veiðimenn.
Stormur er framleiddur í línuþyngdum #6, #7, #8, #9 og #10.
Stuttur hausinn hleður tvíhenduna þína hratt sem er frábært þar sem pláss fyrir bakköst er takmarkað.
Hleðslukaflinn auðveldar þér að meta rétta hleðslu fyrir næsta kast.








