Rio Þytur Premier F/I
17.995 kr.
Rio Þytur Premier F/I – NÝTT – Nú einnig með hægsökkvandi haus.
Rio Þytur flotlínan kom á markaðinn sumarið 2024, sló í gegn og seldist upp á undraverðum tíma. Nú er Rio Þytur á leið til landsins og verður tilbúinn til afgreiðslu í vikunni bæði sem flotlínan vinsæla en nú einnig með hægsökkvandi haus. Tryggðu þér eintak af vinsælustu flugulínu á Íslandi í forsölu strax í dag.
Rio Þytur er ný flugulína framleidd fyrir Veiðihornið.
Vinsælustu
flugulínurnar undanfarin ár hafa verið Rio Outbound Short og Rio Single
Hand Spey. Við tökum það besta úr báðum og útkoman er Rio Þytur.
Hin fullkomna flugulína fyrir íslenskar aðstæður.
Rio Þytur er með hægsökkvandi haus, framleidd í línuþyngdum #5, #6, #7 og #8.
Rio Þytur er fullkomlega jafnvægisstillt og kraftmikil flugulína, hönnuð jafnt fyrir undir- og yfirhandarköst.
Rio Þytur er lína með einstaklega vel hönnuðum skothaus.
Einfalt er að lyfta línunni af vatnsyfirborði hlaða í fullkomið framkast, jafnvel þegar það er lítið pláss fyrir bakkastið.
Stuttur skothausinn hleður flugustöngina djúpt og snöggt fyrir kraftmikið framkastið og auðveldar því lengdarköst.
Samanþjappaður hausinn sem er með þyngdarpunktinn á hárréttum stað hentar jafnt byrjendum sem vönustu flugukösturum.
Rio Þytur er með SlickCast kápunni sem er endingarbesta og sleipasta kápan á markaðnum.
Rio Þytur er í flokki Premier lína hjá Rio. Auk SlickCast kápunnar er línan með verksmiðjulykkjum á báðum endum.
WF5F/I – Heildarlengd 30.5 m – Hauslengd 7.3 m – Kjarni 9.1 kg. – Hausþyngd 14 gr / 216 grain
WF6F/I – Heildarlengd 30.5 m – Hauslengd 7.3 m – Kjarni 9.1 kg. – Hausþyngd 16 gr / 247 grain
WF7F/I – Heildarlengd 30.5 m – Hauslengd 7.3 m – Kjarni 9.1 kg. – Hausþyngd 18 gr / 278 grain
WF8F/I – Heildarlengd 30.5m – Hauslengd 7.3 m – Kjarni 9.1 kg. – Hausþyngd 20 gr / 309 grain
Rio Þytur er framleidd hjá Rio í Idaho, Bandaríkjunum fyrir Veiðihornið og Íslandsmarkað.
Sjáðu íslenska stuttmynd um Rio Þyt hér að neðan.