Sage Shift Platinum
Price range: 52.995 kr. through 56.995 kr.
Sage Shift PLATINUM – NÝTT HJÓL 2026
Sterkbyggð og létt hjól fyrir vandláta veiðimenn. Klassískt og stílhreint útlit í bland við snjalla hönnun og nútímatækni. Sage Shift er hannað og smíðað fyrir fjölbreytta notkun; allt frá veiði í litlum lækjum til stórra fljóta eða baráttu við kraftmikla sjávarfiska. Breiðkjarna þröngar spólur með U-laga botni gera það að verkum að flugulína raðast jafnt og hratt inn.
Sage Shift hjólin eru með hinu margrómaða SCS bremsukerfi sem Sage hannaði og á einkarétt á. Bremsudiskar eru úr koltrefjum í algjörlega einangruðu húsi sem heldur salti og sandi frá.
Aðeins þarf einn snúning bremsustillingar frá 1 í 10 með númeraðri bremsuskífunni frá því að spólan er laus í það að vera læst.
Sage Shift er sterkbyggt hjól úr 6061 áli og búið öllum þeim helstu eiginleikum sem búast má við í mun dýrari hjólum.
Auðvelt er að snúa hjólinu frá vinstri til hægri. Taktu fram í athugasemdum þegar þú pantar hvort þú vilt snúa inn með vinstri eða hægri hönd og við smellum undirlínu á hjólið fyrir þig frítt.
Sterkt neoprenhulstur fylgir Sage Shift fluguhjólum.
Sage Shift er fáanlegt í fjórum stærðum: 3/4, 5/6, 7/8 og 9/10 og þremur litum: Bronze, Platinum og Black.
Stærð 3/4 – Fyrir línuþyngd 3 til 4 – Hjólið tekur um 90 metra af 20 punda baklínu miðað við línuþyngd 4 og vegur 122 grömm
Stærð 5/6 – Fyrir línuþyngd 5 til 6 – Hjólið tekur um 90 metra af 20 punda baklínu miðað við línuþyngd 6 og vegur 133 grömm
Stærð 7/8 – Fyrir línuþyngd 7 til 8 – Hjólið tekur um 180 metra af 20 punda baklínu miðað við línuþyngd 8 og vegur 196 grömm
Stærð 9/10 – Fyrir línuþyngd 9 til 10 – Hjólið tekur um 180 metra af 30 punda baklínu miðað við línuþyngd 10 og vegur 227 grömm
(Hjól 7/8 er tilvalið sem einhenduhjóli í lax- og sjóbirtingsveiði. Hjól 9/10 er tilvalið á allar tvíhendur)









