Sitka Delta Pro Wading Jacket Optifade Timber

108.995 kr.

Sitka Delta Pro Wading Jacket Optifade Timber – Væntanlegt í vikunni

Delta Pro Wading jakkinn er gerður til að halda þér þurrum allt frá fyrstu haustrigningum langt fram á krefjandi veðraskilyrði vetrar.  Þriggja laga Gore-tex öndunarfilman er með óviðjafnanlega útöndun og er 100% vatnsheldur.  Fullkomin veðurvernd og aukið slitþol.  Delta Pro Wading jakkinn er stuttur jakki og passar því vel með vöðlum.  Jakkinn er vel sniðinn og gert er ráð fyrir að þú getir bætt við einangrunarlögum eftir því sem þurfa þykir.

3ja laga Gore-tex efnið er með yfirburða útöndun og jafnframt 100% vatnshelt.
Endingargóð vatnsvörn ysta byrðis hrindir frá sér vatni svo jakkinn þornar fyrr.
Vatnsvörn í ermastroffi heldur vatni úti og hita inni.
Innbyggðar festingar fyrir anda- og gæsaflautur.
Stillanleg og vellöguð hettan veitir veðurvörnd en hindrar ekki sýn.
Tveir stórir vasar fyrir skothylki eru framan á jakkanum.
Tveir brjóstvasar með vatnsfráhrindandi rennilásum.
Innri vasi sem hægt er að fjarlægja.  Tru Zip rennilásinn á vasanum er fullkomlega vatns- og rykheldur.
Fóðraðir handvermivasar sitja hátt á jakkanum.  Þægilegt er að stinga höndum í handvermivasa á milli fluga.
Aðeins 924 gr. (Stærð L).

Optifade Timber er fullkomið felumynstur í alla anda- og gæsaveiði.

Clear

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið