Sitka Dew Point Jacket Optifade Subalpine
3ja laga Gore-tex Dew Point jakkinn er fisléttur og 100% vatnsheldur. Jakkinn er einfaldur, gerður úr 20 denier nylon rifstoppefni í ysta byrði með Gore C-Knit efni í baki fyrir aukna útöndun og þægindi. Dew Point jakkinn er útbúinn með rennilásum undir höndum fyrir aukna loftun og útöndun. Allir saumar eru límdir. Vasar eru með rennilásalokun og auðvelt að komast í þá þó bakboki sé borinn.
Gore-tex filman tryggir 100% vatnsheldni og mikla útöndun.
Ytra byrði er úr 20 denier rifstopp efni.
Mjúkt Gore C-Knit efnið í baki eykur útöndun og gerir það að verkum að ekkert fer fyrir jakkanum þegar honum er pakkað.
Jakkinn er sniðinn jafnt fyrir þunn eða þykk einangrunarlög.
Áföstu og stillanleg góð hetta.