Steini
650 kr.
Steini
Steini er nýleg fluga úr smiðju ljósmyndarans og veiðileiðsögumannsins Sigurjóns Ragnars.
Við kynntum Steina fyrst opinberlega síðastliðið vor þegar við komum þessari veiðnu flugu fyrir á flugubar Veiðihornsins.
Um fluguna segir hönnuðurinn: „Steini er fluga sem ég notaði í Aðaldalnum og er góð í lituðu vatni og líka þegar það er sól. Hún er nefnd í höfuðið á Steina heitnum sem var gæd þar.“
Steingrímur Stefánsson var leiðsögumaður í Laxá í Aðaldal og betur þekktur sem Steini frá Straumnesi. Steini lést langt fyrir aldur fram nú í sumar, aðeins 56 ára gamall.






