Stóra bókin um villibráð

8.995 kr.

Stóra bókin um villibráð

Úlfar Finnbjörnsson hefur stundum verið nefndur villti kokkurinn, enda fer hann víða og stundar fjölbreytta veiðimennsku auk þess að vera matreiðslumeistari á heimsmælikvarða. Hann er sannkölluð fyrirmynd annarra veiðimanna og umgengst náttúruna af mikilli virðingu.

Úlfar töfrar fram ljúffenga veislurétti úr hreindýrum,
sjávarspendýrum, ferskvatnsfiskum og þeim fuglategundum sem má veiða á Íslandi. Hann fjallar um allt sem viðkemur frágangi á bráðinni allt frá
því hún er felld eða veidd; hvernig á að reyta, svíða, hamflettam, úrbeina, flaka og geyma. Til að nýta sem best allt hráefnið er kennt hvernig á að búa til kæfur, pylsur, súpur, soð og sósur.

Stóra bókin um villibráð er sannkallað alfræðirit fyrir alla
veiðimenn og áhugafólk um nýtingu villibráðar, full af fróðleik og ómótstæðilegum sælkerauppskriftum.

Glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson prýða bókina, bæði af réttunum ásamt skýringamyndum af helstu verkunaraðferðum.

Teikningar eru eftir Jón Baldur Hlíðberg.