TM
650 kr.
TM
TM flugan kom fram á sjónarsviðið fyrir fáeinum árum og sló í gegn sumarið 2024. Hönnuður TM flugunnar er hinn kunni ljósmyndari og veiðileiðsögumaður Sigurjón Ragnar.
Flugan er einföld í hnýtingu og með klassísku yfirbragði. TM er afburða góð fluga við allar aðstæður, ekki síst í björtu veðri þegar komið er vel inn í sumarið.
Fyrir áhugasama fluguhnýtara er uppskriftin hér:
TM
Krókur – Silfurlituð Ahrex þríkrækja í stærðum 10, 12 eða 14
Tvinni – Svartur Semperfli Classic Wax 8/0
Stél – Hvít kanína
Vöf – Silfurlitað, ávalt UNI tinsel
Búkur – Græn flatt UNI tinsel
Skegg – Fanir af gullitaðri hanahálsfjöður
Vængur – Grábekkjótt íkornahár með fínum Semperfli perlutinseli






