Undertaker

650 kr.

Undertaker

Hönnuður: Warren Duncan

Undertaker er ekki nema rétt ríflega 40 ára gömul fluga þó margir haldi að
hún sé mun eldri.

Hér er útfararstjórinn hnýttur á litla einkrækju sem tilvalið er að nota í gáruveiði með Portlandsbragðinu

Hér er uppskrift af Undertaker:

Undertaker
Krókur – Ahrex HR414
Tvinni – Svart Semperfli Nano Silk
Broddur – Flatt Uni gull tinsel, því næst flúrljómað grænt Glo Brite og að
lokum flúrljómað appelsínugult Glo Brite.
Vöf – Gylltur Semperfli vír.
Búkur – Svart UNI flos (á stærri króka er fallegra að nota fanir af Páffuglsfjöður).
Skegg – Nokkrar fanir af svartlitaðri hanahálsfjöður.
Vængur – Hár af svartlituðum Íkorna (á minnstu króka er oft smekklegra að nota
svartlitaða kanínu).
Kinnar – Fanir af frumskógarhana (JC)
Haus – Svartur eða rauður eftir smekk.  Ef valið er rautt kemur betur út
að nota rauðan hnýtingartvinna og lakka tvær til þrjár umferðir með glæru lakki
yfir og láta þorna vel á milli umferða.

Þar sem erfitt er orðið að fá frumskógarhana nú til dags á skaplegu verði er
vert að benda á að framleiðendur á borð við Semperfli eru farnir að framleiða
mjög líflegt og  fallegt efni sem hægt er að nota í staðinn fyrir ekta
fjaðrir.

Hér að neðan er skýringarmynd fengin af vefnum fishing.org en þar má finna fjölmarga gagnlega hnúta.

Clear

Shadow Flies