Veiðihornið og ABU efna til veiðikeppni fyrir börn og ungmenni, 15 ára og yngri og mun keppnin standa yfir í allt sumar. Keppnin gengur út á að veiða sem flestar tegundir fiska. Markmiðið er að fá alla krakka út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Flokkar 

1. Þremur tegundum landað
2. Sex tegundum landað
3. Níu tegundum landað

Verðlaun

Allir fá verðlaun! Þegar keppandi hefur skilað inn mynd af fyrsta fiski fær hann Abu spún í verðlaun frá Veiðihorninu. Í lok sumars verða nöfn þriggja keppenda dregin út í hverjum flokki og fá viðkomandi glæsileg verðlaun frá Abu.

Skráning

Þátttakendur þurfa að skrá sig í Veiðihorninu Síðumúla með samþykki foreldris eða forráðamanns. Ungi keppandinn fær Litlu veiðibókina með leiðbeiningum keppninnar, myndum af fiskunum þar sem henn getur skráð aflann í allt sumar.

Býrðu út á landi?

Hægt er að skrá sig í keppnina með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Við sendum þér Litlu veiðibókina í pósti á meðan birgðir endast.

Persónuupplýsingar verða ekki notaðar í markaðslegum tilgangi né seldar til þriðja aðila. Ef þú ilt skrá þig á póstlista Veiðihornsins þá er hann neðst á forsíðu vefsins.

    Nafn keppanda

    Heimilisfang keppanda:

    Póstnúmer og staður

    Fæðingardagur keppanda

    Forráðamaður

    Netfang

    Símanúmer

    Viltu koma einhverju á framfæri varðandi skráninguna?

    Veldu viðeigandi:

    Reglur

    Keppnin er ætluð 15 ára og yngri.

    Senda þarf inn myndir af veiðimanni með fisk ásamt nafni veiðimanns og heimilisfangi svo við getum sent honum spún að gjöf, nafni ljósmyndara, stað og á hvaða agn var fiskurinn veiddur.

    Netfang veiðikeppninnar er: veidikeppni@veidihornid.is

    Veiðihornið áskilur sér rétt til að birta innsendar myndir.

    Einnig væri gott að fá upplýsingar um stærð hans og annað sem keppanda finnst skipta máli.

    Allt löglegt agn er leyfilegt.

    Tegundir

    Tegundirnar tíu sem hér eru listaðar upp eru þær algengustu:
    Ufsi, koli, marhnútur, þorskur, makríll, ýsa, flundra, bleikja, urriði og lax. 
    Ef keppandi veiðir aðra tegund en er á listanum, viljum við endilega vita af því af því okkur finnst alltaf gaman að fá góðar veiðisögur.

    Af þessum tíu tegundum eru sex sem veiðast bara í sjó. Það eru þorskur, ufsi, koli, marhnútur, makríll og ýsa. Flundra er fiskur sem getur bæði veiðst í sjó og í fersku vatni. Sjóbleikjan, laxinn og sjóbirtingurinn ganga úr sjó í ferskt vatn. Svo er talað um staðbundinn urriða og bleikju sem halda sig í fersku vatnið allt árið.

    Ufsi

    Þorskur

    Koli

    Flundra

    Marhnútur

    Makríll

    Ýsa

    Urriði

    Bleikja

    Lax

    Markmið og veiðistaðir

    Það getur verið gaman að setja sér markmið í tengslum við þetta. Hvar á að ná í fyrstu þrjár tegundirnar? Velja sér svo staði þar sem keppandi eða foreldri veit um góða möguleika. Vel heppnuð bryggjuferð getur gefið vel og þá þarf að passa upp á að öryggið sé í fyrirrúmi. Björgunarvesti og slíkur búnaður sé klár.

    Mjög mörg vötn geyma bæði bleikju og urriða og þar getur verið fínt að koma sér af stað með tveimur tegundum, ef allt gengur upp. Allar tegundir eru hér jafn mikilvægar og gefa sömu niðurstöðu. Það þarf bara að skila inn mynd af keppanda með umræddan fisk, samanber reglurnar hér að ofan.

    Sumarið er komið, segir dagatalið og stutt í að skólarnir loki. Hvað er þá betra en að gera veiðistöngina klára og hella sér í þetta?

     

    Njótum sumargleðinnar með fjölskyldunni í allt sumar.