Við erum að fá stóra sending af byssuskápum frá fyrirtækinu Infac á Spáni. Áætlað er að skáparnir verði hjá okkur fyrstu dagana í desember.
Um er að ræða skápa fyrir 3, 5, 6 og 8 byssur. Allir skápar standast kröfur yfirvalda um öryggisskápa.
Efnisþykktin er 2mm. Lamir eru innfelldar og kólfar ganga úr hurð í karm.
Stærri skáparnir eru með læsanlegu innra hólfi en 3ja byssu skápurinn án. Lykillæsing er á öllum skápum.
Forsala er hafin í netverslun Veiðihornsins og verða skáparnir afhentir í Veiðihorninu Síðumúla fyrri hluta desember.
Mikill skortur hefur verið á byssuskápum á landinu síðustu vikurnar svo nú er tækifærið til að tryggja sér skáp úr þessari sendingu sem er á leið yfir hafið.