Ally´s Shrimp

650 kr.

Ally´s Shrimp

Hönnuður: Alastair Gowans

Það er svo magnað að þegar sumri hallar og haustið nálgast verða flugur í gulum og appelsínugulum litum svo sterkar.  Rækjan hans Alla, Ally´s Shrimp er ein þeirra, dæmigerð haustfluga.

Í „gamla daga“ var Ally´s Shrimp gjarnan hnýtt á stóra króka, jafnvel í stærðum 4 og 6 en í dag veiðir flugan yfirleitt best hnýtt á smáa króka og dregin löturhægt eða þá bara á dauðareki.

Ally´s Shrimp finnur þú á flugubar Veiðihornsins og í veiðibúð allra landsmanna á netinu.  Allar netpantanir eru sendar með póstinum samdægurs eða næsta virka dag.

Fyrir veiðikonur og veiðimenn sem hnýta vilja sínar eigin veiðiflugur er uppskriftin hér:

Ally´s Shrimp
Krókur – Ahrex HR424 Classic Low Water
Tvinni – Rauður UNI 8/0
Stél – Appelsínugullituð hjartarhalahár ásamt nokkrum þráðum af Crystalflash.
Vöf – Ávalt UNI gulltinsel.
Búkur – 1/2 rautt UNI floss að aftan og 1/2 svart UNI floss í fremri hluta búksins.
Skegg – Hár úr gráu íkornaskotti.
Vængur – Fanir úr bekkfjöður af gullfasana.
Hringskegg – Appelsínugullituð hanahálsfjöður.
Haus – Rauður

Hér að neðan hnýtir Niklas Dahlin hjá Shadow Flies Ally´s Shrimp fyrir okkur.

Clear

Shadow Flies