Blue Coronation
480 kr.
Blue Coronation
Sá sem þetta skrifar heldur sérlega mikið uppá þessa flugu því á hana fékk ég fyrsta „hitch“ laxinn minn. Þetta var fyrir tíma „hitch“ / gárutúpanna en þá voru flugur einfaldlega hnýttar hefðbundið á tauminn en taumnum síðan brugðið aftan við hausinn á flugunni.
Þetta var í Brennunni í Borgarfirði og takan var hin stórkostlegasta. Fyrst kom fiskurinn eins og tundurskeyti, stökk, hrifsaði fluguna en festist ekki. Þá reyndi hann aftur, stökk og tók gárandi Blue Coronation með látum.
Blue Coronation hefur sem sagt veitt lax en hún er sérlega góð í bæði bleikju- og urriðaveiði.
Kristján Friðriksson heldur úti frábærum fluguvef – FOS.is. Á vef Kristjáns er góðar upplýsingar um fluguna sem einnig heitir Coronation Bucktail. Við leyfum okkur að birta frásögnina um Coronation Bucktail hér og hvetjum áhugafólk um flugur og veiði að fylgjast með vefnum SOS.is:
Það eru ekki margar flugur sem eins mikil rannsóknarvinna hefur verið
lögð í eins og þessa. Puget Sound Anglers, sem er félagsskapur
veiðimanna og starfar á norðanverðum Olympic skaga, rétt vestan við
Seattle, lagði í töluverða rannsóknarvinnu á sjötta áratug síðustu aldar
á fæðu Coho Kyrrahafslaxins sem gengur í árnar á þessu svæði.
Afraksturinn af vinnu þessa hóps var margþættur, m.a. öflugt starf
sem snéri að umhverfivernd (langt á undan sinni samtíð), vernd
sjógöngustofna, fiskirækt og rannsóknir á almennum lífsskilyrðum
laxfiska á svæðinu. Skynsamleg nýting fiskistofna var leiðarljós þessa
hóps og því ekkert því til fyrirstöðu að nýta fæðurannsóknirnar til að
hanna t.d. þrjár flugur sem líktust fæðuframboðinu á svæðinu; Candelfish
Bucktail, Herring Bucktail og þessarar, Coronation Bucktail. Allt eru
þetta flugur sem hafa skipað sér í raðir vinsælustu sjóflugna um allan
heim frá því þær komu fram.
Ein þessara flugna, þessi hér, hefur ratað inn á hnýtingarborð
Íslenskra veiðimanna í nokkra áratugi og gert góða hluti í lax og ekki
síður í sjóbirting. Þá er hún hnýtt úr hjartarhala (e: bucktail) og því sem næst í upprunalegri stærð, oft eftir uppskrift sem finna má í bók Joseph Bates, Streamer Fly Tying and Fishing
sem kom út árið 1966. Þar gaf Bates upp hjartarhár sem hráefni
flugunnar, að ósekju. Allar þessar flugur hafa frá upphafi verið kenndar
við hjartarhala, sem er svolítið skondið, því það er ekki eitt einasta
hjartarhalahár að finna í upprunalegu uppskriftinni. Allar voru þær
upprunalega hnýttar úr ísbjarnarhárum.
Þó Coronation sé að öllu jöfnu réttilega eignuð Puget Sound Anglers
sem hópverkefni, þá kom það í hlut Roy A. Patrick að klæða hugmyndir
félagsmanna í búning flugu, rétt eins og hinar tvær sem hópurinn
hannaði.
Eins og fram hefur komið, þá eru þessar flugur fyrst og fremst
ætlaðar til laxveiði í sjó og hannaðar sem slíkar, hnýttar á stóra og
þunga króka og þurftu engrar þyngingar við. Sjálfur hef ég sett þessa
flugu saman í nokkuð smærri útgáfu og jafnvel leyft mér að nota allt
annað efni en ísbjörn, hvað þá hjartarhala í þær. Ég leyfi mér að setja
innan sviga í uppskriftina hér að neðan þær stærðir og efni sem ég hef
prófað með ágætum árangri.
Höfundur: Puget Sound Anglers / Roy A. Patrick
Öngull: legglangur straumfluguöngull 2/0 (#6 – #10)
Þráður: 8/0 svartur (10/0 svartur)
Vöf: ávalt silfur tinsel
Búkur: flatt silfur tinsel
Vængur 1: hvítt ísbjarnarhár (hvítur refur)
Vængur 2: rautt ísbjarnarhár (rauður hestur)
Vængur 3: blátt ísbjarnarhár (blár hestur)
Haus: svartur lakkaður







