Frances Nymph Black Jig
650 kr.
Frances Nymph Black Jig
Hér er Frances í heldur nýstárlegum búningi eða hnýtt sem púpa með þungri tungstenkúlu á jig krók.
Síðustu árin, ekki síst þegar vatnslítið er hefur andstreymisveiði fyrir lax orðið æ vinsælli. Það lá því beint við að hnýta vinsællustu laxaflugu allra tíma, Frances sem andstreymispúpu.
Andstreymispúpur eru gjarnan hafðar þungar og hnýttar á Jig krók. Þær snúa því öfugt í vatni, þ.e. oddur öngulsins snýr upp og flugan festist því síður í botni.
Þegar þú veiðir lax andstreymis má segja að þú veiðir hylinn öfugt. Þú byrjar neðst, kemur aftan að fiskunum, kastar fram fyrir þá og lætur fluguna fljóta í áttina að þeim. Við viðkvæmar aðstæður reynist þessi aðferð oft mjög vel.
Ég tala nú ekki um ef þú þekkir veiðistaðinn vel og veist hvar heitustu blettirnir eru. Þá getur þú læðst varlega að þeim og einbeitt þér að því að vippa eða kasta andstreymisflugunni á það svæði.
Góða skemmtun.









