Jólaflugan 2025 – Silungur

995 kr.

Jólaflugan 2025

Hér er hann kominn, jólasveinninn.  Við kusum að kalla hann Flugusníki.

Við erum ekki sannfærð en það má reyna þessa gerðarlegu þurrflugu í sumar.  Ef einhver gerir það erum við til í að fá mynd.

En það má líka bara geyma Flugusníki með Snæfinni og jólatréinu sem eru jólaflugur síðustu ára.

Við vonum að þú hafir haft ánægju að jóladagatalinu þínu, þú kynnst nýjum flugum og jafnvel lært eitthvað.
Við höfum haft gaman að þessu í desember og erum strax farin að hugsa um jóladagatalið 2026.  Ef þú átt flugu sem þig langar til að deila í jóladagatali næsta árs máttu endilega vera í sambandi við okkur í Veiðihorninu, Síðumúla 8.

Starfsfólk Veiðihornsins sendir þér sínar bestu óskir um gleðilega hátíð.
Megi nýtt ár færa þér hamingju, heilsu og fallega veiði.

ps.  Nöfn allra sem keyptu jóladagatölin okkar í forsölu lentu í potti.  Við drógum eitt nafn úr pottinum í gær og ætlum að gefa þeim heppna / þeirri heppnu splunkunýja flugustöng frá Sage, stöng sem kemur á markaðinn í janúar eða febrúar og við megum ekki segja meira frá nú.  Stöngin er samt komin í hús og við hringdum í dag í hina heppnu Völu Rut  og létum hana vita af því að hún mætti kíkja á okkur og skoða stöngina en hún fengi hana samt ekki afhenta fyrr en SAGE í USA tilkynnti um komu hennar á markaðinn sem verður nú í byrjun árs. 
Vala var að vonum hæstánægð, sagðist ekki veiða sjálf en maðurinn hennar fengi stöngina. 
Hamingjuóskir til ykkar Vala Rut og veiðimaðurinn hennar.  Við vonum að það verði allt í keng í sumar.
Verið velkomin til okkar í Síðumúlann 🙂

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Síminn Pay Léttkaup Síminn Pay Léttkaup
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Shadow Flies