Nobbler Black

495 kr.

Svartur Nobbler

Nobblerar eru til í fjölmörgum útfærslum og litum.  Áður fyrr voru þessar flugur hnýttar á mjög legglanga straumfluguöngla en síðustu árin er Nobbler vinsælli hnýttur á styttri krók og gjarnan vafinn með Grizzly fjöðrum (bekkjóttum).  Þessi útfærsla Nobbler er oft kennd við stórveiðimanninn og fluguhnýtarann Stefán Hjaltested.

Nobbler er hnýttur í mörgum litum en einhvernvegin er sá svarti alltaf vinsælastur.  Svartur Nobbler er sérlega góður í urriða og sjóbirting á meðan hvítir, appelsínugulir og jafnvel bleikir veiða betur staðbundna og sjógengna bleikju.

Sá sem þetta skrifar hefur lent í stórkostlegum ævintýrum og landað fjölda sjóbirtinga á svartan Nobbler í svarta myrkri dimm haustkvöld í Skaftafellssýslum.
(Óli)

Allar góðar veiðiflugur færðu á stóra flugubarnum í Veiðihorninu, Síðumúla 8.

Fyrir veiðikonur og veiðimenn sem hnýta veiðiflugur sínar sjálf fylgir uppskriftin hér.

Svartur Nobbler
Krókur – Ahrex SA220 straumfluguöngull
Tvinni – UNI 6/0 svartur
Stél – Fáeinar fanir af svartlituðum Marabou ásamt nokkrum Krystalflash þráðum
Loðkragi – Grænt Chenille
Vöf – Ávalt UNI silfur Tinsel
Búkur – Svart Chenille
Búkfjöður – Svartbekkjótt hanafjöður
Augu – Vaskakeðja eða þverhaus (þyngri en vaskakeðja)
Haus – Svartur

Clear

Shadow Flies