Krókur

340 kr.

Krókur

Krókurinn er án efa einhver vinsælasta silungafluga síðustu ára.  Hönnuður Króksins var Gylfi Kristjánsson heitinn en úr hans smiðju komu margar þekktar, veiðnar flugur.

Krókurinn veiðir jafnt bleikju sem urriða en einnig má gjarnan nota Krókinn andstreymis í laxveiði síðsumars þegar lækka fer í ánum.

Hér er uppskrift sem styðjast má við:

Öngull – Ahrex FW540
Þráður – Svart Semperfli Nano Silk
Stél – Fanir úr fasanastélfjöður
Broddur – Blóðrautt spunaefni (dubbing – t.d. Chrystal Antron)
Búkur – Vinyl Rib svart
Haus – Koparkúla (brass eða tungsten)

Clear

Shadow Flies