Langskeggur Brúnn

380 kr.

Langskeggur Brúnn

Í dag sjáum við brúna útgáfu Langskeggs.  Brúnn langskeggur er ekki eins þekktur og sá fyrsti sem kom fram á sjónarsviðið en er alls ekki síður veiðinn.  Hér að neðan eru nokkrar línur um Langskegginn ásamt uppskrift fyrir þá sem vilja spreyta sig á að hnýta hann.

Langskeggur er án efa ein albesta bleikjupúpa sem komið hefur fram á
sjónarsviðið síðustu árin.  Hönnuður þessar mögnuðu flugu er hinn kunni
fluguhnýtari og veiðimaður, Örn Hjálmarsson.  Flugan veiðir vel í vötnum
landsins en líklega best þó sjóbleikjuna í Hraunsfirði.

Langskeggur
er upphaflega svartur en nú er einnig farið að hnýta þessa góðu flugu
með brúnu garni og svo má líka finna hana þyngda með kúlu.  Allar
útværslur hafa reynst vel og einkanlega þá í stærðum 12 og 14.

Hér er uppskrift Langskeggs:

Krókur – Legglangur.  Kamasan B800 í stærðum 12 og 14
Þráður – Svartur Semperfli Nano Silk eða Classic Waxed Thread 8/0
Vöf – Semperfli koparvír
Búkur – Svart árórugarn
Vænghylki – Dökkbrúnt UNI Flos eða Body Stretch.
Skegg – Fanir úr svartlitaðri hanahálsfjöður

Clear

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kortagreiðsla - Færsluhirðing Landsbankans
  • Netgíró Netgíró
  • Síminn Pay Léttkaup Síminn Pay Léttkaup
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Shadow Flies