Litla Bleik
Litla Bleik
Við kynnum til sögunnar nýja púpu. Reyndar er Litla bleik ekki alveg ný því hún var fáanleg á flugubar Veiðihornsins í sumar og gaf vel.
Hann Binni vinur okkar sem átti einnig Pinky sem þú sást 2. desember gerði þessa veiðnu púpu. Binni er sérfræðingur þegar kemur að veiði í Elliðavatni og hefur tælt margar bleikjur og jafnvel stöku lax á púpuna Litlu bleik.
Púpan er einföld í hnýtingu og hér er uppskrift sem má styðjast við:
Krókur – Legglangur Ahrex
Haus – Koparkúla (við mælum með 3.8mm á krók 10, 3.3mm á krók 12 og 2.8mm á krók 14
Tvinni – Svartur UNI 8/0
Vöf – ávalt UNI silfur tinsel
Búkur – Bleikt flos
Kragi – Peacock fanir
Þess má geta að Litla bleik reyndist líka afburðagóð í sjóbleikju í sumar. Ef þú ætlar að hnýta Litlu bleik fyrir andstreymisveiði í hraðari strengjum mælum við með því að þú skiptir koparkúlunni út fyrir tungstenkúlu og hnýtir á Jig króka frá Ahrex.
Góða skemmtun.





