Nobbler Gold

495 kr.

Gylltur Nobbler

Nobbler straumflugur eru til í fjölmörgum litum og tilbrigðum. 

Þessi útfærsla af Nobbler, Gylldur Nobbler eða Gull Nobbler er líklega einhver albesta straumflugan í Veiðivötnum síðustu árin.

Sértu á leið í Veiðivötn verður þú að eiga að minnsta kosti tvo Gull Nobblera í boxinu þínu.

Gyllti Nobblerinn er einnig sérlega góður bæði í sjóbleikju og sjóbirting, ekki síst á björtum dögum.

Skoðaðu allar góðu veiðiflugurnar á flugubar Veiðihornsins. 
Við sendum allar netpantanir samdægurs eða næsta virka dag.

Hér er uppskrift sem styðjast má við:

Gull Nobbler
Krókur – Ahrex NS115 Deep Streamer
Tvinni – Gulur UNI 6/0
Stél – Fanir af Turkey Marabou Gold
Vöf – Ávalt UNI gull tinsel og fjöður af gulbekkjóttum hana.
Búkur – Gyllt Chennille.
Haus – Gyllt vaskakeðja eða gylltur þverhaus sem er þyngri en vaskakeðjan.

Clear

Shadow Flies